
Þyrluþjónustan býður útsýnisflug frá Geysi á Bell 206L1 þyrlu. Í boði verða þrjár mismunandi ferðir auk þess sem boðið verður upp á sérferðir eftir óskum. Sjáðu Gullfoss, Geysi, Hvítá, Laxárgljúfur og Hagavatn úr þyrlu, ógleymanlegt.
Þyrlan lendir skammt frá Hótel Geysi. Tilvalið er að fara í mat á Hótel Geysi fyrir eða eftir flug. Sjá nánar um Hótel Geysi hér: www.hotelgeysir.is
Gullfoss & Geysir – 20 mín
Við lyftum okkur frá Geysi og fljúgum upp með Tungufljóti og skógræktinni í Haukadal. Þaðan að Gullfossi þar sem farþegar sjá hann frá alveg einstöku sjónarhorni. Frá Gullfossi rennum við niður með Hvítá og skoðum Geysi í lokin.
Verð: 39.000 kr. per. farþega
lámark 4 farþegar í ferð
Laxárgljúfur – 30 mín
Flogið frá Geysi að Gullfossi og hann skoðaður, þaðan er flogið í austurátt að hinum mögnuðu Laxárgljúfrum þar sem við líðum svo niður þau eins og ormur. Eftir þessa skemmtilegu rússíbanaferð er stefnt til baka á Geysi og svæðið skoða úr lofti fyrir lendingu.
Verð: 49.000 kr. per. farþega
lámark 4 farþegar í ferð
Langjökull – 40 mín
Haldið er frá Geysi beint upp að Farinu í Hagavatni. Þaðan er farið yfir jökul og Jarlhettur með sitt stórbrotna umhverfi. Þvínæst líðum við yfir Gullfoss á meðan Geysir bíður eftir okkur og gefur kannski lendingarheimild með því að gjósa fyrir lendingu.
Verð: 59.000 kr. per. farþega
lámark 4 farþegar í ferð
Smellið hér til að sjá VEFMYNDAVÉL frá Gullfossi.


