ÚTSÝNISFERÐIR
Þyrluþjónustan hefur boðið útsýnisferðir frá árinu 1989. Þyrluferðir eru einstök leið til að upplifa landið okkar og njóta Íslenskrar náttúru til fulls. Þyrluferð er ekki bara fyrir ríka og fræga fólkið, stutt útsýnisflug er á færi flestra og vel þess virði. Skoðaðu ferðirnar sem eru í boði og hafðu svo samband og draumurinn verður að veruleika.
FERÐ 1 – HREIN ORKA - (um 1 klst.)

Reykjavik – Glymur – Þingvellir – Nesjavellir – Hellisheiði – Reykjavik.
Þessi ferð er í svipuðum dúr og þyrluferð 3 en við bætist náttúra og orkuver Nesjavalla og Hellisheiðar. Gufustrókarnir þar geta verð tignarlegir að sjá, enda er hér mikil skýjaframleiðsla í gangi sem dulmagnað er að skoða í návígi úr lofti. Möguleiki er að lenda í ferðinni, ef áhugi er fyrir slíku.
Verð: 195.000 kr.
FERÐ 2 – 101 Reykjavík (um 30 mínútur)

Reykjavík – Helgafell – Esja – Reykjavík.
Í þessari ferð er nágrenni Reykjavíkur skoðað og náttúrufegurðin nýtur sín vel, hérna við bæjardyrnar okkar, frá sjónarhorni sem ekki gefst venjulega kostur á. Ferðin tekur um 0:30 mín.
Verð: 110.000 kr.
Hafðu samband og bókaðu ferð – S: 561 6100 eða tölvupóstur
FERÐ 3 – GULL HRINGURINN - (um 2,5 klst.)

Reykjavík – Þingvellir – Langjökull – Geysir – Gullfoss – Nesjavellir – Reykjavík.
Gullni Hringurinn er ferð sem ber af, frábær leið til að upplifa landið okkar á alveg einstakan hátt og þarf ekki að tíunda frekar. Við lendum á jöklinum, ef aðstæður leyfa og stoppum síðan í um 30 mín. á Geysi.
Hafðu samband og bókaðu ferð – S: 561 6100 eða tölvupóstur
FERÐ 4 – EVRÓPA OG AMERÍKA (um 45 mínútur)

Reykjavík – Glymur – Þingvellir – Reykjavík.
Hér er náttúra Íslands í allri sinni dýrð. Glymur er hæsti foss landsins og sést hann hvergi betur en úr þyrlu. Þingvellir og Almannagjá eru stórbrotin þegar þyrlan líður yfir og útsýnið er frábært. Möguleiki er að lenda í ferðinni, ef áhugi er fyrir slíku.
Verð: 170.000 kr.
Hafðu samband og bókaðu ferð – S: 561 6100 eða tölvupóstur
FERÐ 5 – ÞÍN FERÐ

Langar þig að ráða ferðinni, hafðu samband og við búum til þína ferð, möguleikarnir eru nánast endalausir.
Verð: Byggist á þínum óskum.
Hafðu samband og bókaðu ferð – S: 561 6100 eða tölvupóstur

