UMSAGNIR
FARÞEGAR
“Frábært, við fórum í flug með Þyrlunni um daginn og það er bara það magnaðasta sem við höfum gert, mælum með þessu fyrir alla.” Sigurjón.
“Aldrei gert neitt jafn skemmtilegt, æðislegt, flugmaðurinn var æðislegur.” Svana, Guðrún, Ásta & Gugga.
“Við komum 6 manns í óvissuferð. Ég er mjög lofthrædd og fannst þetta frekar ógnvekjandi fyrst en svo var þetta alveg geðveikt. Þvílíkt útsýni og ég var svo örugg, ekki til nein lofthræðsla. Ég mæli tvímælalaust með þessu fyrir alla, þetta er eitthvað sem að maður gerir einu sinni á ævinni (vonandi oftar) Geðveikt !!!! Takk kærlega fyrir okkur” Gengið úr Keflavík í óvissuferð
“Meiriháttar gaman, við ætlum öll að verða þyrluflugmenn hjá þyrluþjónustunni, allavega stelpurnar.” 10 bekkur Ólafsfjarðarskóla.
“Ótrúlega gaman, alveg frábær ferð. Útsýnisflug og matur í miðri ferðinni, okkur var lofað ævintýri og það stóðst. Takk fyrir okkur.” Adam Goldberg.
FYRIRTÆKI
“Þjónustan var til fyrirmyndar, verkefnið leist fljótt og vel af hendi, lentum í smá brasi á staðnum en flugmaðurinn bjargaði því, þó að það tengdist ekki fluginu sjálfu.” ISOR.
“Skjót og mjög góð þjónusta hjá ykkur, Reynir var frábær, góður flugmaður” Míla.
“Við vorum mjög ánægðir, þetta gekk framar vonum, þrótt fyrir þykka þoku, takk fyrir. ”Síminn
“Alveg frábært hvað þið voruð snöggir að leysa málið fyrir okkur, við komum aftur þegar við þurfum á svona þjónustu að halda.” Fjarski.
“Fengum þyrlu Þyrluþjónustunnar til aðstoðar við leit. Fóru þeir með mann frá okkur með tökuvél og var þannig hægt að fara yfir stórt svæði á stuttum tíma. Takk fyrir hjálpina.” Slysavarnafélagið Landsbjörg.
“Takk fyrir aðstoðina við að koma útsýnispallinum upp á Keili. Þetta gekk ótrúlega fljótt fyrir sig hjá ykkur og strákarnir voru mjög fegnir að þurfa ekki að bera dótið upp á topp” Björgunarsveitin Þorbjörn.
MYNDGEIRINN
Fórum í fréttaflug með þyrlunni, kom svona líka vel út, frábærar myndir og gott efni, þyrla er bara snilld í svona verkefni.” Stöð 2
“Náðum frábærum myndum og fréttaefni í suðurlandsskjálftanum, vorum fyrstir á staðinn þökk sé þyrluþjónustunni.” Stöð 2
“Við erum mjög ánægð með flugið, flugmaðurinn var virkilega pró við allar tölur, leikstjórinn var hæstánægður, einn besti kvikmyndaflugmaður sem hann hefur flogið með” Pegasus Panarctica.
“Glæsileg aðstaða, snyrtileg þyrla, frábær flugmaður, flugrekstrarstjórinn gríðarlega hjálpsamur. Reynir og ég unnum frábærlega vel saman, hann vissi upp á hár hvað ég þurfti og “ók” þyrlunni eins og herforingi. Vandamál sem kom upp vegna viðhalds á þyrlunni var leyst af mikilli fagmennsku og við komumst í loftið aftur án þess að missa birtuna. Við komum sannarlega aftur.” Bobby Haas.
“Frábær þjónusta, mjög fagmannlega unnið. Frábær flugmaður við náðum öllum skotum sem við ætluðum og meira til, þökk sé Reyni og þekkingu hans á landinu.” Japan TV.
“Ég hef flogið í kvikmyndatökuflugi um allan heim, og hef töluverða reynslu af því. Hér hjá ykkur fékk ég topp klassa þjónustu. Reynir er frábær kvikmyndaflugmaður, það er eins og hann hafi aldrei gert annað.” Yann Arthus Bertrand Director.
“Flugmaðurinn var magnaður, hann fór með okkur á staði sem voru ótrúlegir, við náðum svakalegu myndefni.” Julian.


