UM OKKUR
Þyrluþjónustan hf. var stofnuð árið 1989 með Bell 206L1 Long Ranger þyrlu sem enn er í rekstri félagsins. Við höfum sinnt verkefnum í Skandinavíu og á Grænlandi samhliða flugi hér heima. Við erum elsta starfandi þyrlufyrirtæki á Íslandi.
Eigandaskipti urðu á félaginu í byrjun árs 2006 og var ráðist í töluverða endurskipulagningu, árið 2007, sem nú er lokið. Við bjóðum alla viðskiptavini sem og aðra velkomna í glæsilegt húsnæði okkar á Reykjavíkurflugvelli, Skýli 23 í Fluggörðum, gengið inn frá Njarðargötu (sjá kort). Einnig er starfsemin í skýli 14, sem er upprunaleg aðstaða okkar á vellinum.
Verkefni félagsins hafa verið af margvíslegum toga í gegnum árin, má þar nefna kvikmynda, ljósmynda, rannsóknar, slökkvi, eftirlits, útsýnis og farþegaflug ásamt margvíslegri krókvinnu sem eingöngu er hægt að vinna með þyrlum.
Einnig hefur Þyrluþjónustan boðið uppá þyrlukennslu frá árunum 1991-1992 og 1998 til 2004. Áætlanir er uppi um að bjóða aftur slíka kennslu í framtíðinni. Í dag er Þyrluþjónustan með eina þyrlu í rekstri, Bell 206L1. Þyrluþjónustan mun leitast við að auka þjónustuna enn frekar í þyrluflugi á Íslandi sem og erlendis, og koma þannig til móts við viðskiptavini okkar á sem bestan, öruggastan og hagkvæmastan hátt.
STARFSFÓLK
| Sigurður Pálmason Framkvæmdastjóri Sími: 561 6100 Gsm: 892 1555 siggi@helicopter.is |
Reynir Freyr Pétursson Þjálfunar- / Yfirflugstjóri Sími: 561 6100 Gsm: 899 3132 reynirp@helicopter.is |
Már Þórarinsson Tæknistjóri Sími: 561 6100 Gsm: mar@helicopter.is |
Gunnar Viðar Hafsteinsson Gæðastjóri Sími: 561 6100 Gsm: gunnar@helicopter.is |
| Eggert Akerlie Flugrekstarstjóri / Flugmaður Sími: 561 6100 Gsm: 847 6736 eggert@helicopter.is |
ÞYRLAN OKKAR


