ÞJÓNUSTA

Þyrluþjónustan bíður alla almenna og sértæka þjónustu með þyrlum, ekkert verk er of stórt eða of lítið. Frá stofnum árið 1989 höfum við þjónustað einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir í allrahanda þyrluverkefnum, s.s. útsýnisflug, farþegaflug, kvikmynda/frétta og ljósmyndaflug, rannsóknaflug, slökkviflug og allt almennt og sértækt verkflug. Hér á síðunni er að finna nánari lýsingu á helstu verkþáttum okkar. Hafðu samband til að sjá hvað við getum gert fyrir þig.


Farþegaflug:

Þyrlur geta lent á flestum stöðum og þurfa ekki flugvelli. Þannig getur verið mjög hentugt og hagkvæmt að fara ferða sinna á þyrlu þegar komast þarf á milli staða á fljótan og öruggan hátt.


Ljósmyndaflug:

Ljósmyndarar hafa frá upphafi nýtt sér þjónustu okkar til að ná sem bestum myndum af íslensku landslagi. Myndir þeirra sýna aðra hlið af Íslandi þar sem samspil manns og náttúru kemur fram í samhengi sem er hreint stórfenglegt! Fjöldi íslenskra og erlendra ljósmyndara nýtir sér þjónustu okkar.

Afmælisflug:

Gefðu einstaka afmælisgjöf sem aldrei gleymist. Við búum til skemmtilega ferð fyrir þig og það eina sem þú þarft að gera er að koma með afmælisbarnið. Flugmenn okkar bjóða svo ógleymanlega ferð.



Brúðkaupsflug:

Já….. er svarið! Það er alveg einstök tilfinning að svífa um á rósrauðu skýi, en þá tilfinningu þekkja brúðir og gumar vel á stóra daginn. Hvernig væri að svífa í raun, í þyrlu frá okkur, inn í hjónasængina. Við fljúgum með brúðhjónin á næsta áfangastað í ógleymanlegum stíl. Þyrlubrúðkaup! Já…. það er svarið.

Gæsa & Steggjaflug:

Á þessum degi snýst allt um skemmtun og engar reglur gilda (nema flugreglur). Sleppið fyrirsjáanlegum ferðum og komið gæs eða stegg verulega á óvart með frábæru þyrilvængjuflugi? Ógleymanlegt útsýnisflug yfir borgina eða skutl á næsta djammstað. Þyrlan er tilbúin fyrir ykkur.


Útsýnisflug:

Náttúra landsins er stórkostleg og úr þyrlu er upplifunin einstök! Fjöllin, hraunið, fossarnir, jöklarnir.. allt frá öðru sjónarhorni en þú hefur áður séð. Upplifun sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara. Hvort sem það er sleðaferð upp á jökul, fjórhjólafjör, veiði, eða hinn klassíski gullni hringur – við förum með þig í flug sem þú gleymir aldrei.

Kvikmyndaflug:

Þyrluþjónustan hefur margra ára reynslu í kvikmyndarflugi. Má þar nefna myndir á borð við James Bond: Die Another Day, Batman Returns, Flags of Our Fathers, Mýrin, A little trip to heaven og HOME, svo eitthvað sé nefnt.

Einnig höfum við tekið þátt í gerð fjölda sjónvarps- og auglýsingamynda sem og heimildarmyndgerð fyrir innlenda sem erlenda aðila. Við bjóðum hentuga þyrlu og reynda kvikmyndaflugmenn til verksins. Fagmennska er ávallt í fyrirrúmi.

Fréttaflug:

Fjölmiðlar hafa einnig nýtt sér okkar þjónustu í gegnum tíðina við fjölda mörg tækifæri. Fréttamennska snýst um að vera snöggur á staðinn og ná góðu myndefni. Við höfum áralanga reynslu af flugi með fréttamenn á staði þar sem allt er að gerast þá stundina. Hvort sem það er mótmæli, jarðskjálfta, eldgos, slys, eldsvoða, umferðina eða bara eitthvað ánægjulegt sem gaman er að segja frá. Við erum snöggir á staðinn og þið fyrstir með fréttirnar.



Krókvinnuflug

Þar sem samgöngur eru erfiðar eða tími og aðstæður kalla á, er góð lausn að fá þyrlu í verkefnið. Hvort sem það er heitur pottur við bústaðinn, byggingarefni, steypa eða flutningur á mönnum, efni eða tækjum fyrir sérverkefni, þá gerum við þér vinnuna mun auðveldari, spörum tíma og peninga og förum vel með umhverfið.

Rannsóknaflug:

Þyrluþjónustan hefur starfað með Háskóla Íslands, Landmælingum,  ÍSOR, og fjölda annarra fyrirtækja, stofnanna og einstaklinga, á sviði jöklamælinga og jarðfræðirannsókna til margra ára, ásamt því að hafa starfað náið með orkustofnunum við vatnamælingar og landmælingar fyrir vega- og kortagerð um land allt.

Slökkviflug:

Þyrluþjónustan er tilbúin til slökkvistarfa úr lofti, í þannig verkefni er notuð 600 lítra slökkvifata. Fatan nýtist einkar vel í baráttu við sinuelda og þar sem aðgengi er erfitt fyrir venjulegt slökkvistarf.

Stærsta sinuverkefni sem Þyrluþjónustan hefur tekið þátt í voru sinueldar á Mýrum í Borgarfirði vorið 2006. Þar sem talið er að búnaður okkar hafi skipt sköpum í baráttu við gríðarlegan eld á stóru svæði við afar erfiðar aðstæður.

Sumarið 2009 loguðu eldar í hrauninu suðvestur af Reykjavík í nokkra daga og allstórt svæði af viðkvæmum mosa brann.  Á sama tíma var mikið moldrok vegna landrofs á hálendinu og höfðu menn áhyggjur af því að landið væri að fjúka burt.

Eldsneytisbíll

Eldsneyti fyrir þyrlur er aðeins fánalegt á nokkrum stöðum á landinu og því getur skapast mikill aukakostnaður fyrir viðskiptavininn ef fljúga þarf til að sækja sopann. Eldsneytisbíll getur því sparað umtalsverða fjármuni þegar verkefnið er þess eðlis.

Öryggisstarfsmenn

Í mörgum verkefnum er nauðsinlegt að hafa aukamanneskju frá okkur með í för vegna öryggis. Tryggja þarf svæðið umhverfis þyrlurnar og ganga úr skugga um að öryggi farþega og þeirra sem vinna umhverfis þær sé aldrei stefnt í hættu.


Hafðu samband
Þyrluþjónustan hf
Helicopter Service of Iceland
Fluggarðar 23
101 Reykjavik
Sími: 561 6100
Fax: 561 6122
Sendu okkur tölvupóst
Hér erum við - KORT
Vertu vinur Þyrluþjónustunnar
Find Helicopter Service of Iceland on Facebook
Ferðamálastofa