
Myndatökuflug, ljósmynda og kvikmyndatökuflug eru stór þáttur í starfsemi Þyrluþjónustunnar. Ljósmyndarar, kvikmyndagerðarmenn, sjónvarpsstöðvar og fréttastofur, frá öllum heimshornum, nýta sér þjónustu okkar.
Kvikmyndaflug:
Þyrluþjónustan hefur margra ára reynslu í kvikmyndarflugi. Má þar nefna myndir á borð við James Bond: Die Another Day, Batman Returns, Flags of Our Fathers, Mýrin, A little trip to heaven og HOME, svo eitthvað sé nefnt.
Einnig höfum við tekið þátt í gerð fjölda sjónvarps- og auglýsingamynda sem og heimildarmyndgerð fyrir innlenda sem erlenda aðila. Við bjóðum hentuga þyrlu og reynda kvikmyndaflugmenn til verksins. Fagmennska er ávallt í fyrirrúmi. Sjá UMSAGNIR viðskiptavina okkar.

